Fara í efni
Mannlíf

Leikskólinn verður á milli hjúkrunarheimila

Lengi hefur staðið til að stækka hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð í Glerárhverfi eða byggja nýtt þar norðan við. Einnig stendur til að byggja leikskóla á svæðinu, steinsnar frá grunnskólanum Síðuskóla.

Meirihluti skipulagsráð Akureyrar samþykkti á síðasta fundi að leggja til við bæjarstjórn að leikskólinn verði á milli Lögmannshlíðar og hins nýja hjúkrunarheimilis. 

Tvær tillögur að útfærslu svæðisins lágu fyrir fundinum:

  • Tillaga A ... fyrirhugað hjúkrunarheimili verði staðsett norðan við núverandi hjúkrunarheimili og sunnan við fyrirhugaðan leikskóla
  • Tillaga B ... fyrirhugaður leikskóli verði staðsettur norðan við núverandi hjúkrunarheimili og sunnan við fyrirhugað hjúkrunarheimili. SAMÞYKKT

Jón Hjaltason, óháður fulltrúi í skipulagsráði, sat hjá við afgreiðslu málsins. Hann er á móti því að hjúkrunarheimili verði byggt á staðnum og útskýrir mál sitt í grein sem birtist á Akureyri.net í dag.

Smellið hér til að lesa grein Jóns Hjaltasonar