Fara í efni
Mannlíf

Látlaust og snoturt steinhús – 102 ára í ár

„Einhvern tíma minnist greinarhöfundur þess að hafa heyrt, að Staðarbyggðarfjall, eitt helsta kennileiti Eyjafjarðarsvæðisins fremra, héti jafn mörgum nöfnum og bæirnir sem undir því stæðu. Hvort eitthvað er til í því skal ósagt látið hér, en á flestum kortum bera mismunandi hlutar þess þrjú nöfn og Staðarbyggðarbæjarnir skipta tugum, enda leitun að blómlegra héraði.“

Þannig hefst nýr pistill Arnórs Blika Hallmundssonar í röðinni vinsælu og fróðlegu, Hús dagsins. Eins og áður hefur komið fram markaði hann sér þá stefnu í upphafi árs að taka fyrir hús á Akureyri og nágrenni, sem eiga stórafmæli á þessu ári, 100 ára og eldri.

Framhald upphafs pistils dagsins er svohljóðandi:

„Ysti og lægsti hluti fjallsins heitir vissulega Öngulstaðaöxl, hnjúkurinn við miðbik fjallsins Uppsalahnjúkur og syðsti hlutinn Sigtúnafjall. Og það er einmitt við Sigtún sem okkur ber niður hér, en þar stendur látlaust og snoturt steinhús, sem samkvæmt fasteignaskrá, á aldarafmæli í ár. Á Héraðsskjalasafninu liggja hins vegar fyrir gögn, sem sanna með óyggjandi hætti, að húsið er byggt nokkru fyrr, eða 1924, sem gerir það 102 ára í ár.“