Fara í efni
Mannlíf

Lárheggur tilkynnir að sumarið sé á næsta leyti

„Óhætt er að fullyrða að oftast er það þannig með okkur Íslendinga að við notum heimilisgarðana okkar ekki mikið nema í um fjóra mánuði á ári. Aftur á móti koma flest okkar heim til sín næstum alla daga ársins. Því getur verið skemmtilegt að skipuleggja sígræn beð sem næst útidyrunum. Þá tekur alltaf eitthvað grænt á móti okkur þegar við komum heim hvenær ársins sem er nema ef allt er á kafi í snjó.“ 

Þannig hefst nýr pistill Sigurðar Arnarsonar í röðinni Tré vikunnar á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga sem akureyri.net birtir hluta úr á miðvikudögum. Í dag fjallar hann um lárhegg.

Sigurður heldur áfram: „Ekki er verra ef þessir sígrænu runnar geta blómstrað fallega en það geta þeir ekki allir. Ef hægt er að hafa svona beð í góðu skjóli er tilvalið að hafa þar lárhegg eða Prunus laurocerasus L. Hann er sígrænn og blómstrar snemma á hverju vori. Þannig tilkynnir hann okkur að sumarið sé á næsta leiti. Svo er vaxandi áhugi hjá mörgum að hafa sem flestar sígrænar tegundir sem víðast í görðum svo hægt sé að njóta þeirra árið um kring. Þar passar lárheggurinn prýðilega.“