Mannlíf
Hvers vegna á gulvíðir það til að laufgast seint?
29.04.2026 kl. 16:00
Hvernig stendur á því að til eru kvæmi og klómar gulvíðis sem laufgast svo seint að nær allur annar gróður er löngu farinn að spretta þegar laufin loksins birtast?
Sigurður Arnarson veltir því fyrir sér í nýjum pistli í röðinni Tré vikunnar. „Þetta fyrirbæri má sjá um allt land en er mest áberandi um sunnanvert og suðvestanvert landið. Víða í uppsveitum Suðurlands er þetta beinlínis algengt. Hvaða vistfræðilegu þættir ýta undir þessa þróun hjá tegundinni? Þetta er lykilspurningin sem við veltum fyrir okkur í þessum pistli,“ segir Sigurður.
Meira hér: Síðlaufgaður gulvíðir