Mannlíf
Hvenær teljast tré dauð? Lífið finnur sér leið
02.09.2026 kl. 09:30
Öll tré eiga sér æviskeið. Þau byrja líf sitt gjarnan sem nýspírað fræ, vaxa og þroskast uns þau að lokum falla og drepast. Að minnsta kosti er vaninn að telja að svo sé.
Þetta segir Sigurður Arnarson í vikulegum pistli í röðinni Tré vikunnar á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga.
Í pistlinum beinir Sigurður sjónum að þessu. „Við vitum að allt sem vex og lifir fölnar að lokum og deyr. Getur verið að til séu tré sem ekki fara eftir þessari alþekktu staðreynd? Hvenær er ljóst að tré sé dautt og hvað ákvarðar það? Hvenær hefst líf trjáa og hvernig metum við aldur þeirra? Getur tré verið eldra en elsti hluti þess? Þetta eru spurningar sem við veltum fyrir okkur í þessum pistli,“ skrifar hann.