Hið óviðjafnanlega danska „smørrebrød“
Hvernig varð hversdagsleg rúgbrauðssneið að einu þekktasta auðkenni danskrar matarmenningar?
Þannig spyr Þráinn Lárusson í dag, í vikulegum pistli fyrir akureyri.net í röðinni MATARÞRÁ-INN og hætt er við að lesendur fái vatn í munninn!
Undir lok 19. aldar tók látlaust nesti alþýðufólks í Danmörku algjörum stakkaskiptum. Það sem lengi hafði verið fábrotinn millibiti þess hóps þróaðist yfir í ríkulega hlaðið smurbrauð, højtbelagt smørrebrød – lúxus á brauðsneið sem höfðaði til efnameiri stétta. Nokkrar samverkandi breytingar gerðu þessa matargerðarlegu blómgun mögulega.
Vissir þú, lesandi góður, að smurbrauðsvagnar voru algeng sjón í stærri bæjum og borgum í Danmörku fyrir miðja síðustu öld,; forverar pylsuvagna og matarvagna nútímans? „Um miðja öldina mátti kaupa einfaldar smurbrauðssneiðar á ferðinni í smurbrauðssöluskýlum á fjölförnum torgum Kaupmannahafnar,“ segir Þráinn.
Heima á Akureyri, þegar Þráinn „var stráklingur að læra matreiðslu fannst mér ég endalaust vera að gera snittur og smurt brauð.“ Honum leiddist þetta en hvort tveggja var vinsælt á þeim tíma og „ekki man ég hversu margar snittur ég gerði fyrir starfsfólk Iðnaðarbankans á Akureyri, en í minningunni kom nánast alla föstudaga símtal frá Regínu í bankanum.“
Pistill Þráins: Smurt på dansk