Fara í efni
Mannlíf

Hermannshöll reist í Botnsreit

Gleðidagur! Frá vinstri: Hermann Sigtryggsson, Ólafur Jakobsson, Jón Björn Arason, Ragnar Ásmundsson og Geirlaug Björnsdóttir, forseti Rótarýklúbbs Akureyrar.

Félagar í Rótarýklúbbi Akureyrar vígðu í gærkvöldi trjáhýsi sem þeir reistu til heiðurs elsta félaga klúbbsins, Hermanni Sigtryggssyni, í Botnsreit í Eyjafirði.

Botnsreitur er skógarreitur innan við Hrafnagil sem Rótarýfélagar hafa ræktað í um 70 ár. Hermann hefur verið félagi í Rótaryklúbbnum í 58 ár og verið afar ötull i skógræktinni eins og öðru sem hann hefur tekið sér fyrir hendur á farsælli ævi sinni, eins og einn Rótarýfélaginn orðaði það við Akureyri.net.

Hermann hefur um áratugaskeið gengið með hugmynd að uppbyggingu á trjáhýsi í reitnum og ákváðu klúbbfélagar að láta hana verða að veruleika í tengslum við 90 ára afmæli Hermanns á síðasta ári.

Hagleikssmiðurinn Jón Björn Arason á veg og vanda að byggingunni en fékk dygga aðstoð frá Rótarýfélögunum Ragnari Ásmundssyni og Ólafi Jakobssyni. Trjáhýsinu var gefið nafn við athöfnina í gærkvöldi – Hermannshöll skal hún heita.