Fara í efni
Mannlíf

Haustátak í ræktinni og önnur dekkjaskipti ...

Haustátak í líkamsræktinni hefur lengi verið árviss viðburður hjá séra Svavari Alfreð Jónssyni. „Það hefst um svipað leyti og haustheimsóknin á dekkjaverkstæðið á sér stað,“ segir Svavar í nýjum pistli fyrir Akureyri.net.

„Misvel hefur mér gengið að koma mér í viðunandi vetrarástand. Eitt haustið var ásigkomulag mitt þannig, að þegar ég gekk inn í sturtuklefann eftir viðureign við lóð og tæki, hafði það áhrif á alla hreyfiskynjara og fótósellur þar og vatnið tók að fossa úr hverri einustu sturtu,“ segir hann meðal annars.

Smellið hér til að lesta pistil Svavars