Harmonikuhavaríi, fallera og fallerí
„Hver ber ábyrgð á þessu harmonikuhavaríi?“ hrópaði Aðalsteinn Öfgar í símann. Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið og rétt náði að hvá áður en hann hélt áfram.
Stefán Þór Sæmundsson er mættur með pistil, áttunda laugardaginn í röð, enn á spjalli með Aðalsteini Öfgar.
„Sko, það er greinilega ætlast til að um leið og fólk kemst á virðulegan aldur þá verði það sjálfkrafa vitlaust í harmonikutónlist og gömlu dansana, þú veist, brokk og hopp, skottís og fjandans kokkinn með kabyssuna og annað fallera og fallerí eins og enginn fái nóg af því.“
Stefán náði smám saman þræði í máli vinar síns, sem sagði farir sínar ekki sléttar. Stefán skrifar: „Alli varð jú 67 ára 12. september og ég var búinn að hvetja hann til að fara að taka þátt í félagslífi eldri borgara og þótt fyrr hefði verið. Í símanum heyrði ég hann súpa drjúgum og svelgjast á.“
Pistill Stefáns Þórs: Neita að troða nikku í kokið