Hallgrímur sá sjöundi með 400 deildaleiki
Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA-maðurinn reyndi, varð aðeins sjöundi leikmaðurinn í sögu Íslandsmótsins í knattspyrnu til að ná stórum áfanga þegar KA sótti Valsmenn heim í næstsíðustu umferð Bestu deildar karla í gær.
Hallgrímur lék þar sinn 400. deildaleik á ferlinum en þar af hefur hann leikið 355 leiki fyrir KA sem er félagsmet.
Hallgrímur, sem varð 36 ára fyrr í þessum mánuði, er að ljúka sínu 20. tímabili í meistaraflokki á Íslandsmótinu en hann hóf ferilinn í heimabænum Húsavík árið 2007 þar sem hann lék tvö fyrstu árin með Völsungi í 2. deild.
Hann kom til liðs við KA fyrir tímabilið 2009 og lék með liðinu í 1. deild en var síðan lánaður aftur til Völsungs seinni hluta tímabilsins 2010.
Hallgrímur sneri aftur til KA og spilaði með Akureyrarliðinu næstu fjögur árin, 2011 til 2014, í 1. deildinni og var þá fljótlega kominn í stórt hlutverk í liðinu. Hann skoraði 24 mörk í 79 leikjum í 1. deildinni á þessum árum.
Eina tímabilið hans utan Norðurlands var árið 2015 en þá brá Húsvíkingurinn sér suður til Reykjavíkur og lék með Víkingi, og þreytti þá um leið frumraun sína í úrvalsdeildinni. Hann lék 14 leiki með Víkingum í deildinni og skoraði 4 mörk en missti af fyrstu átta leikjum liðsins vegna meiðsla.

UPP Í EFSTU DEILD – 2016 Hallgrímur Mar gerði sigurmark KA (2:1) gegn Grindavík úr vítaspyrnu í næst síðustu umferð næst efstu deildar Íslandsmótsins og tryggði KA þar með sigur í deildinni – og langþráð sæti í efstu deild á ný. Hér fagnar hann markinu ásamt Hrannari Birni bróður sínum og fyrirliðanum, Davíð Rúnar Bjarnasyni. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Missti ekki úr leik í átta ár
Hann sneri aftur til Akureyrar eftir eins árs dvöl í Reykjavík og hefur leikið með KA samfleytt frá árinu 2016. Fyrsta árið í 1. deild, þar sem hann tók þátt í að koma KA upp í úrvalsdeildina eftir tólf ára fjarveru, og síðan samfleytt með liðinu þar frá og með árinu 2017.
Hann vann það afrek að missa ekki úr einn einasta leik með KA á Íslandsmótinu frá 2016 til árins 2024. Fyrst lék hann alla 22 leiki KA í 1. deild árið 2016 og síðan 160 leiki í röð í úrvalsdeildinni en enginn leikmaður í sögunni hefur leikið jafnlengi með sama félaginu án þess að missa úr leik.
Veikindi urðu til þess að Hallgrímur missti af fimm fyrstu leikjum KA í deildinni árið 2024 en frá þeim tíma hefur hann haldið sínu striki að mestu leyti og leikið 71 af síðustu 74 leikjum KA á Íslandsmótinu. Hann hefur þó þurft að sleppa þremur af 26 leikjum liðsins á þessu ári vegna meiðsla.
Margfaldur methafi hjá KA
Hallgrímur hefur með leiknum í gær leikið 246 leiki í efstu deild, þar af 232 fyrir KA sem er félagsmet, en hinir 14 leikirnir voru með Víkingi. Þá lék hann 123 leiki fyrir KA í 1. deild og 31 leik með Völsungi í 2. deild en Hallgrímur hefur skýrt frá áhuga sínum á að ljúka ferlinum með Völsungi og sagði m.a. frá því í viðtali í bókinni Íslensk knattspyrna 2024.
Hallgrímur á líka markamet KA í efstu deild, 86 mörk, en samtals hefur hann gert 90 mörk í deildinni og er níundi markahæsti leikmaðurinn í sögu hennar. Á þessu ári hefur hann skorað 11 mörk og þetta er fjórða tímabilið með KA þar sem hann skorar tíu mörk eða meira í deildinni.
Þá skoraði hann 31 mark fyrir KA í 1. deild og 7 fyrir Völsung í 2. deild og mörkin á Íslandsmótinu eru því orðin 128 talsins.

2023 – Hallgrímur Mar skorar úr vítaspyrnu í 4:2 sigri KA á Fram í Bestu deildinni í maí árið 2023. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Sex fyrstu sem léku 400 leiki
Þeir sex leikmenn sem höfðu náð því á undan Hallgrími að leika 400 leiki í deildakeppni Íslandsmótsins eru eftirtaldir:
Óskar Örn Hauksson er methafinn með 448 leiki. Hann lék með Njarðvík, Grindavík, KR, Stjörnunni og Víkingi R. frá 1999 til 2024 en hann spilaði til viðbótar einn leik með Haukum í 2. deild á þessu ári. Hann á jafnframt leikjamet úrvalsdeildarinnar sem er 382 leikir.
Gunnleifur Gunnleifsson markvörður átti metið á undan honum en hann lék 439 leiki með HK, KVA, KR, Keflavík, FH og Breiðabliki frá 1994 til 2020, þar af 304 leiki í úrvalsdeildinni.
Gunnar Ingi Valgeirsson er þriðji en hann lék 431 leik frá 1985 til 2022, þar af 379 með Sindra á Hornafirði, en einnig með Fjölni, Mána og GG.
Kristján Ómar Björnsson er fjórði með 425 leiki frá 1997 til 2026 en hann lék bæði með Hafnarfjarðarliðinu KÁ í 3. deild og Suðurnesjaliðinu RB í 5. deild á þessu ári. Áður lék hann með Haukum, Stjörnunni, Þrótti R., Gróttu, ÍR, Álftanesi, Augnabliki, KFK og ÍH. Þar af eru 64 úrvalsdeildarleikir með Haukum og Þrótti.
Hjörtur Júlíus Hjartarson er fimmti með 408 leiki frá 1994 til 2022 en hann lék með Skallagrími, Völsungi, ÍA, Þrótti R., Selfossi, Víkingi R., Augnabliki, Kórdrengjum og SR. Þar af er 141 úrvalsdeildarleikur með ÍA, Þrótti R. og Skallagrími. Hjörtur er jafnframt markahæstur í sögu Íslandsmótsins með 223 mörk í öllum deildum.
Mark Duffield er sjötti með 400 leiki, deilir núna sætinu með Hallgrími, en hann varð jafnframt fyrstur allra til að ná þeim leikjafjölda. Mark lék á árunum 1981 til 2006 með Þrótti í Neskaupstað, KS á Siglufirði, KA, Víði, ÍA, Leiftri, Tindastóli, Fjarðabyggð, GKS á Siglufirði og Neista á Hofsósi. Þar af lék hann 53 úrvalsdeildarleiki með KA, Víði og ÍA.