Fara í efni
Mannlíf

Þór með örlögin í eigin höndum eftir 100. sigurinn

Þorri Ingólfsson gulltryggði sigur Þórs á Stjörnunni þegar hann gerði þriðja markið - og fagnað með stæl! Mynd: Ármann Hinrik

Þór er kominn með undirtökin í einvíginu við KA um áframhaldandi sæti í Bestu deild karla í fótbolta og er með allt í eigin höndum fyrir lokaumferð deildarinnar.

Þórsarar lögðu Stjörnuna að velli á Akureyri í dag, 3-1, á meðan KA tapaði illa fyrir Valsmönnum á Hlíðarenda, 4-1. Þórsarar náðu um leið þeim merkilega áfanga að vinna sinn 100. sigur í efstu deild karla frá upphafi frá því liðið lék þar fyrst árið 1977.

Örvar Eggertsson kom Stjörnunni þó yfir strax á 3. mínútu leiksins en glæsileg mörk frá táningunum Ásbirni Líndal Arnarssyni og Sverri Páli Ingasyni komu Þór í 2-1 snemma í leiknum og Þorri Ingólfsson, eitt ungstirnið í viðbót, gulltryggði sigurinn með marki í síðari hálfleiknum, eftir undirbúning enn eins guttans, Einars Freys Halldórssonar.

Ásbjörn Líndal Arnarsson hamrar boltann með sínum öfluga vinstri fæti í vinstra hornið niðri beint úr aukaspyrnu á 11. mín leiksins. Þetta var fyrsta mark Ásbjörns í efstu deild. Myndir: Ármann Hinrik

Þar með er Þór með 27 stig í 10. sætinu en KA situr í 11. sætinu, fallsæti, með 26 stig fyrir lokaumferðina sem er leikin á laugardaginn kemur.

Þá fara Þórsarar suður í Hafnarfjörð og mæta FH á meðan KA fær fallna Eyjamenn í heimsókn. Þórsarar geta því treyst alfarið á sjálfa sig, ef þeir vinna í Kaplakrika halda þeir sæti sínu í Bestu deildinni, hvað sem KA-menn gera gegn ÍBV.

Takist Þórsurum hins vegar ekki að vinna leikinn þurfa þeir að treysta á að KA takist ekki að sigra Eyjamenn. Jafntefli Þórs gegn FH þýðir að KA þarf að vinna ÍBV en tapi Þórsarar gegn FH nægir KA-mönnum jafntefli vegna mun betri markatölu.

Spennan gæti því vart verið meiri á Akureyri fyrir þessa 27. og síðustu umferð Íslandsmótsins 2026.

Núna komu mörkin

Helsta vandamál Þórsliðsins í ár hefur verið að skora mörk, ásamt því reyndar oft á tíðum að forðast að fá á sig mörk, en fyrir leikinn í dag hafði liðið aðeins einu sinni náð að skora fleiri en tvö mörk í leik. Það var í KR-leiknum ótrúlega þegar Þórsarar komust í 3-0 á fyrsta korterinu en máttu sætta sig við jafntefli, 3-3.

En núna komu mörkin, þegar mest var undir, og óhætt er að segja að Þórsliðið hafi sýnt gríðarlega mikinn andlegan styrk undanfarnar vikur. Í þessum leik gegn Stjörnunni voru það enn og aftur baráttukrafturinn, sigurviljinn og samstaðan sem færðu liðinu þessi mikilvægu þrjú stig.

Gríðarlegur dugnaður og vinnusemi einkennir liðið sem hefur unnið fyrir því að koma sér í þá stöðu að hafa örlögin í eigin höndum fyrir síðasta leikdag Íslandsmótsins 2026. Þeir voru ekki margir sem spáðu Þórsurum þessari stöðu í byrjun móts, hvað þá þegar þeir sátu á botni deildarinnar síðsumars, eftir 20 umferðir, og voru þá þegar búnir að fá á sig 50 mörk.

Nú hafa þeir unnið fjóra af síðustu sex leikjum sínum og gjörbreytt botnbaráttu deildarinnar.

Þorri Ingólfsson kemur Þór í 3-1 á 58. mínútu. Hann fékk hárnákvæma sendingu frá Einari Frey Halldórssyni í snöggri sókn, í gegnum miðja Stjörnuvörnina, og renndi boltanum í netið frá vítateig, framhjá úthlaupandi markverðinum.

Ungir leikmenn á uppleið

Í raun er sama hvar horft er á Þórsliðið. Hver einasti leikmaður er með sitt hlutverk á hreinu og það hefur verið áhugavert að fylgjast með ungu leikmönnunum þroskast og dafna í liðinu eftir því sem liðið hefur á tímabilið. Einar Freyr var lengi vel mest í umræðunni, enda lykilmaður í þessu Þórsliði, en nú hafa varnarmennirnir jafnaldrar hans, þeir Ásbjörn og Sverrir Páll, tekið stór skref og kórónuðu báðir frammistöðu sína með glæsilegum mörkum í dag. Að ógleymdum hinum 17 ára gamla Þorra sem gulltryggði sigurinn með þriðja markinu.

Með þessum strákum eru svo menn á borð við hinn sívinnandi Ágúst Eðvald Hlynsson, hinn útsjónarsama Christian Jakobsen og hinn firnasterka Gyrði Hrafn Guðbrandsson, ásamt Spánverjanum ósérhlífna, og stundum allt að því ófyrirleitna, Kevin Vazquez, sem hefur verið liðinu óhemju mikilvægur liðsauki seinni hluta tímabilsins. Aron Birkir Stefánsson stígur vart feilspor í markinu og í raun eiga allir í ellefu manna byrjunarliði Sigurðar Heiðars Höskuldssonar hrós skilið fyrir frammistöðu sína í dag.

Ef ég væri ennþá á Morgunblaðinu og M-einkunnagjöfin þar hefði ekki verið lögð niður á þessu ári, þá hefði verið erfitt að skilja einhverja Þórsara útundan í M-gjöfinni!

Ekki er ofsögum sagt að Þorri Ingólfsson hafi fagnað með tilþrifum eftir að hann gerði þriðja mark Þórs í dag og Myndir: Ármann Hinrik

Sama lið og gegn ÍBV

Leik Vals og KA var flýtt um klukkutíma vegna veðurútlits sunnan heiða og því vissu Þórsarar þegar þeir gengu til leiks á Akureyri að staðan á Hlíðarenda væri 1-1.

Sigurður Heiðar stillti upp sama byrjunarliði og í sigurleiknum gegn ÍBV um síðustu helgi. Þrjár breytingar voru gerðar á leikmannahópnum. Yann Affi, sem var í leikbanni síðast, Peter Ingi Helgason og Franko Lalic markvörður komu inn og fengu sér sæti á varamannabekknum en út fóru Victor Bertomeu, Birgir Ómar Hlynsson og Lucas Vieira Thomas markvörður.

Þór mætti til leiks með 24 stig gegn 26 stigum hjá KA í einvígi liðanna um að halda sæti sínu í Bestu deildinni. Ljóst var að Þórsarar væru fallnir ef þrjú stig eða meira myndu skilja liðin að í leikslok, vegna mikils munar á markatölu Akureyrarliðanna.

Byrjunin var eins slæm fyrir Þór og hugsast gat því strax á 3. mínútu opnuðu Stjörnumenn vörn heimamanna. Aron Birkir varði vel frá Emil Atlasyni af stuttu færi en Örvar Eggertsson fylgdi á eftir og kom Stjörnunni yfir. Staðan 1-0, Garðbæingum í hag.

Glæsilegt mark Ásbjörns

En Þórsarar voru ekki lengi að svara. Þeir pressuðu Stjörnumenn af miklum krafti frá byrjun, undan strekkingsvindinum, og það skilaði sér fljótlega. Á 11. mínútu var Þorri felldur eftir góðan sprett rétt utan vítateigs Stjörnunnar. Aukaspyrna og hana tók Ásbjörn Líndal með tilþrifum því hann hamraði boltann með sínum öfluga vinstri fæti í vinstra hornið niðri. Hans fyrsta mark í efstu deild og Þór búinn að jafna metin í 1-1. Nokkurn veginn á sama tíma lenti KA undir á Hlíðarenda, 2-1.

Ekki síðra hjá Sverri

Og aftur liðu átta mínútur. Þegar Þórsarar í stúkunni voru nýbúnir að fá þær fréttir að Valur væri kominn í 3-1 á Hlíðarenda fékk annar ungur varnarmaður, Sverrir Páll, boltann á hægri kantinum frá Bjarna Guðjóni Brynjólfssyni. Hann skellti sér framhjá tveimur Stjörnumönnum á leið sinni inn í vítateiginn og skaut þaðan bylmingsskoti með vinstra fæti í markhornið fjær. Annað glæsimark – líka hans fyrsta mark í efstu deild og Þórsarar komnir í 2-1. Komnir úr fallsæti eins og staðan var í leikjunum.

Þórsarar voru áfram líklegri það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Þeir hleyptu Stjörnumönnum ekki yfir miðju vallarins langtímum saman og Christian Jakobsen fékk gott skallafæri skömmu síðar en Árni Snær Ólafsson varði nokkuð auðveldlega frá honum.

Undir lok hálfleiksins sluppu Þórsarar hins vegar með skrekkinn þegar Kristófer Kristinsson bjargaði naumlega á marklínunni eftir fyrstu hættulegu sókn Stjörnumanna frá upphafsmínútunum.

En ÞÞÞ dómari frá Akranesi flautaði til hálfleiks skömmu síðar. Þórsarar voru yfir, 2-1, og úrslitin á Hlíðarenda lágu fyrir í kjölfarið, 4-1 ósigur KA gegn Val. Þór var því kominn úr fallsæti, í bili alla vega, og KA komið þangað.

Mark Þorra gerði útslagið

Þórsarar létu sterkan mótvindinn ekki trufla sig í síðari hálfleik og svöruðu honum með því að spila áfram af sama krafti og í þeim fyrri.

Þorri kom Þór í 3-1 á 58. mínútu. Hann fékk hárnákvæma sendingu frá Einari Frey í snöggri sókn, í gegnum miðja Stjörnuvörnina, og renndi boltanum í netið frá vítateig, framhjá úthlaupandi markverðinum. Staða Þórs var þarna orðin heldur betur vænleg og annað markið á tímabilinu hjá þessum 17 ára strák sem Þórsarar fengu frá Víkingi á miðju sumri.

Litlu munaði að varnarmistök á 63. mínútu yrðu Þórsurum dýrkeypt. Örvar Eggertsson komst inn í sendingu í miðjuhringnum og brunaði að vítateignum en Aron Birkir varði skot hans í horn.

Stjarnan var hársbreidd frá því að skora eftir hornspyrnu tíu mínútum síðar. Sigurður Gunnar Jónsson skallaði í þverslá Þórsmarksins eftir darraðardans í markteignum en Þór fékk aukaspyrnu í kjölfarið. Rétt á eftir komst Örvar í álitlegt færi á vítateig Þórsara en spyrna hans mistókst gjörsamlega.

Sigurður Heiðar þétti raðirnar á 79. mínútu með því að setja varnarmanninn Ragnar Óla Ragnarsson inn á í stað miðjumannsins Bjarna Guðjóns.

Aron Birkir var vel á verði í markinu á 81. mínútu þegar hann blakaði boltanum yfir þverslána eftir óvænt skot Sigurðar Gunnars af stuttu færi og rétt á eftir skallaði Christian Bjarmi Alexandersson yfir Þórsmarkið úr markteignum.

Andri Rúnar Bjarnason fékk síðan óvænt dauðafæri á 86. mínútu þegar hann var einn gegn Aroni markverði eftir misheppnaðan skalla varnarmanns Þórs en skaut framhjá markinu.

Kevin dansaði á línunni

Rétt á eftir dansaði Kevin Vazquez heldur betur á línunni þegar hann virtist slæma hendi í andlit Andra Rúnars, sem þurfti aðhlynningu í kjölfarið. Kevin var á gulu spjaldi frá því í fyrri hálfleiknum og var því líklega stálheppinn að vera ekki kominn í bann fyrir lokaumferðina.

Bestu tilþrif Stjörnunnar komu í uppbótartímanum þegar Birnir Snær Ingason lék að vítateig og átti fast skot sem Aron Birkir varði glæsilega í horn. En þar með voru stigin þrjú endanlega komin í örugga höfn hjá Þórsurum sem höfðu fulla ástæðu til að fagna vel verðskulduðum sigri þegar Þórður flautaði til leiksloka.

Nú bíðum við eftir því hvað laugardagurinn 24. október ber í skauti sér. Þá kemur í ljós hvort Akureyrarliðanna leikur áfram í Bestu deildinni 2027.

Lið Þórs: Aron Birkir Stefánsson – Sverrir Páll Ingason, Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Ásbjörn Líndal Arnarsson, Kristófer Kristinsson – Kevin Vasquez, Einar Freyr Halldórsson (Fannar Daði Malmquist Gíslason 88.), Bjarni Guðjón Brynjólfsson (Ragnar Óli Ragnarsson 79.) – Ágúst Eðvald Hlynsson, Christian Jakobsen, Þorri Ingólfsson.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í neðri hluta deildarinnar

Leikur Þórs sem eftir er:

  • Laugardag 24. október
    FH – Þór