Fara í efni
Mannlíf

Hálfgert listaverk með þjóðlega vísun

Arnór Bliki Hallmundsson er enn á ferð í Eyjafjarðarsveit í nýjum pistli í röðinni vinsælu, Hús dagsins. Hann markaði sér þá stefnu í upphafi árs, eins og áður hefur verið nefnt, að taka fyrir hús á Akureyri og nágrenni, sem eiga stórafmæli á þessu ári, 100 ára og eldri. Að þessu sinni fjallar Arnór Bliki um Knarrarberg sem stendur neðarlega í brekkunum neðan Bíldsárskarðs, allra syðst og neðst í Vaðlaheiði.

„Í rúm sextíu ár lá þjóðbrautin til austurs frá Akureyri um brýrnar þrjár yfir kvíslar Eyjafjarðarár um óshólmana og áleiðis norður og upp á við eftir hlíðum Vaðlaheiðar,“ segir Arnór Bliki í upphafi pistilsins. „Beint upp af beygjunni áleiðis til austurs blasti geðþekkur og áberandi bær við vegfarendum uppi í brekkunni. Sá var með þremur burstum en þó enginn torfbær heldur steinhús, reist um svipað leyti og brýrnar þrjár. Hér var um að ræða Knarrarberg og er auðvitað enn, þó þjóðvegur 1 liggi nú um tveimur kílómetrum utar, um Leiruveg, sem sumir hefðu fremur viljað kalla Vaðlaveg.“

Örskammt norðan Knarrarbergs heitir Festarklettur og er sagt, að þar hafi skip Helga magra og fylgdarmanna hans lagst við festar. „Þar var um að ræða knerri og er Knarrarbergsnafnið þaðan komið, segir Arnór Bliki.