Mannlíf
Hafnarstræti 23b – „öllu íburðarminna bakhús“
28.11.2026 kl. 23:30
„Schiöthshús við Hafnarstræti 23, er eitt af glæstari húsum bæjarins og stendur á rótgróinni lóð, við mörk hins upprunalega Akureyrarkaupstaðar. Lóðin á sér um 200 ára sögu og þar reis upprunalega hús árið 1834, sem brann árið 1903, og núverandi hús, veglegt timburhús í sveitserstíl var reist.“
Þannig hefst nýr pistill Arnórs Blka Hallmundssonar í röðinni Hús dagsins; áttundi pistill hans um hús sem eiga 100 ára afmæli á þessu ári.
Það er þó ekki Schiöthshús sem er til umfjöllunar að þessu sinni „heldur öllu íburðarminna bakhús, sem er 100 ára í ár, Hafnarstræti 23b (sums staðar nefnt 23a),“ skrifar Arnór Bliki.
Pistill Arnórs Blika: Hafnarstræti 23 b – 100 ára hús VIII