Gróðri ber að halda innan lóðarmarka
„Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götur, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun.“
Þessi stutti kafli er úr byggingarreglugerð sem Sigurður Arnarson vitnar í, í nýjum pistli í röðinni Tré vikunnar. Þar fjallar um gróður á lóðarmörkum.
„Þegar gróður er settur á lóðarmörk er rétt að hafa tilganginn í huga. Gróðurinn þarf væntanlega að veita okkur skjól fyrir vindi en jafnframt að hlífa okkur fyrir forvitnum augum. Gróðurinn má samt ekki vera það hávaxinn að hann kasti of miklum skugga á lóðina og alls ekki á lóð nágrannanna. Hann má heldur ekki vera þannig að hann vaxi inn í gönguleiðir utan lóðarmarka,“ skrifar Sigurður meðal annars.
Meira hér: Gróður á lóðarmörkum