Fara í efni
Mannlíf

Grettistaki lyft í áratuganna rás

Ferðafélag Akureyrar (FFA) var stofnað 8. apríl árið 1936. Næstkomandi miðvikudag verða því liðin 90 ár frá stofnun félagsins og þann dag verður haldið upp á afmælið með dagskrá í Amtsbókasafninu „og væntum við að félagar og velunnarar ferðafélagsins muni fjölmenna og heiðra afmælisbarnið með nærveru sinni,“ segir Hjalti Jóhannesson í síðasta pistlinum sem akureyri.net birtir í tilefni stórafmælis félagsins.

Í pistli dagsins segir Hjalti frá nokkrum húsaflutningum sem félagið hefur staðið fyrir og einnig er birt grein um einn allra skrautlegasta flutninginn sem Ingvar Teitsson, fyrrum formaður FFA skrifaði í Ferðir 1994, um flutning gönguskálans Dyngjufells með risaþyrlu inn í Dyngjufjalladal vestan Ösku árið áður.

Pistill dagsins: Af húsaflutningum Ferðafélags Akureyrar