Fara í efni
Mannlíf

Grasagarðshlutverk Lystigarðsins mikilvægt

Eitt af mikilvægustu hlutverkum Lystigarðsins á Akureyri er grasafræðihlutverk hans, segir Sigurður Arnarson í nýjasta pistli sínum í röðinni Tré vikunnar.

Lystigarðurinn er bæði skrúðgarður og grasagarður og vegna þess síðarnefnda „koma margir í garðinn til að skoða gróður, bæta við sig þekkingu, skoða íslenskar og erlendar plöntur, fá hugmyndir og auðvelda sér skipulag eigin garða,“ segir Sigurður. „Svo eru auðvitað hópur fólks sem skoðar garðinn til að reyna að komast að því hvað í ósköpunum plönturnar heita í eigin garði, án þess að koma upp um eigin fákunnáttu. Við, sem sjáum um pistlaskrif fyrir Skógræktarfélagið, leitum oft í Lystigarðinn eftir upplýsingum og látum gjarnan líta út fyrir að við búum yfir þeirri þekkingu sem við öflum þar. Þar eru nánast allar plöntur merktar, garðurinn er með vandaða heimasíðu með allskonar upplýsingar um fjölbreyttar plöntur og gott er að leita til starfsmanna um upplýsingar.“

Meira hér: Grasagarðshlutverk Lystigarðsins