Getum gert „allt“ en ekki „allt á sama tíma“
Við vitum að fjárhagslegt jafnvægi næst ekki ef við eyðum stöðugt um efni fram. Það sama gildir að sjálfsögðu um orkuna okkar. Við getum svo sannarlega gert „allt“. En við hvorki getum, né þurfum, að gera „allt á sama tíma“.
Þetta segir Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir í heilsupistli sem akureyri.net birtir í dag. Hrafnhildur og Guðrún Arngrímsdóttir, eigendur Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar á Akureyri, skrifa pistla fyrir akureyri.net sem birtast annan hvern þriðjudag.
„Í samfélaginu í dag er hraðinn sjálfgefin stilling. Það kannast flestir við það að það sé „brjálað að gera“ og að við eigum helst að vera á tveimur stöðum í einu,“ segir Hrafnhildur. Hún segir heilbrigt taugakerfi einkennast af sveigjanleika. „Að geta farið í ákefð þegar þess þarf og geta svo snúið aftur í ró. Að geta unnið af krafti og svo slakað raunverulega á. Að finna jafnvægið þarna á milli.“
Pistill Hrafnhildar: Við getum gert „allt“ ... en ekki „allt á sama tíma“