Mannlíf
Gekk Þórólfur Beck um með boltann í snæri?
22.06.2025 kl. 06:00

Mér fannst það eðlilegt þegar ég heyrði um Þórólf Beck að hann hefði pattinn gengið um með boltann í snæri. Mig skorti að vísu þolinmæði til þess en æfði mig þrotlaust í einrúmi heima á lóð.
Þannig hefst kafli dagsins úr Eyrarpúkanum, bók Jóhanns Árelíuzar sem Akureyri.net birtir kafla úr á hverjum sunnudegi.
Þaut í svigi á milli trjánna Ægisgötumegin og reyndi að líma boltann við tærnar. Lék ég mér mikið einn í bolta skemmtunarinnar vegna og fínslípaði tæknina daglega.
Pistill dagsins: Frá morgni til kvölds