Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 304. gamla myndin frá safninu sem birtist hér, ekki er ofsagt að þær njóti gríðarlegra vinsælda á meðal lesenda víða um land og upplýsingar hafa borist um langflestar.

Hefur þú, lesandi góður, hugmynd um hvar myndin að ofan er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir frekari upplýsingum um myndina eða sögum henni tengdar eru hvattir til að senda þær á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net

Mynd dagsins má líka sjá hér

  • Myndin hér fyrir neðan birtist fyrir viku. Þetta er söltunarstöðin Bakki á Siglufirði. Ítarlega var fjallað um húsið Bakka, við hlið söltunarstöðvarinnar, á þessum vettvangi fyrir viku og þar bar söltunarstöðina reyndar á góma.
  • Rétt er að benda á umfjöllun síðustu viku, smellið hér til að lesa hana.

  • Allar gömlu myndirnar frá Minjasafninu á Akureyri sem akureyri.net hefur birt er hægt að skoða HÉR