Fjórir leikmenn KA valdir í „elítuhóp“ HSÍ
Fjórir leikmenn handboltaliðs KA – og einn uppalinn KA-maður að auki – eru í 21 manns „elítuhópi HSÍ“, sem kemur saman til þriggja daga æfingatarnar í vikunni. Hópurinn hittist fimmtudaginn 17. september og æfir fram á laugardag 19. september.
„Í hópnum er blanda af leikmönnum sem hafa þegar bankað á dyrnar hjá A-landsliðinu og efnilegustu leikmönnum landsins sem eru að stíga sín fyrstu skref í Olísdeildinni,“ segir á vef Handknattleikssambands Íslands.
„Tilgangurinn er að stytta bilið frá þeim efnilegustu til þeirra bestu og auðvelda leikmönnum að taka skrefið inn í A-landsliðið þegar þar að kemur,“ skrifar Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður RÚV og fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta, í frétt á vef RÚV.
Markverðir:
- Ágúst Elí Björgvinsson, KA
- Einar Baldvin Baldvinsson, Afturelding
- Jón Þórarinn Þorsteinsson, FH
Aðrir leikmenn:
- Arnór Snær Óskarsson, Valur
- Ágúst Guðmundsson, FH
- Brynjar Narfi Arndal, FH
- Dagur Gautason, KA
- Dagur Árni Heimisson, KA
- Daníel Montoro, Valur
- Freyr Aronsson, Haukar
- Gunnar Róbertsson, Valur
- Harri Halldórsson, Afturelding
- Ingvar Dagur Gunnarsson, FH
- Jens Bragi Bergþórsson, KA
- Jón Bjarni Ólafsson, FH
- Ómar Darri Sigurgeirsson, FH
- Sigurður Páll Matthíasson, Víkingur
- Skarphéðinn Ívar Einarsson, Haukar
(KA-maður sem gekk til liðs við Hauka sumarið 2024) - Stefán Magni Hjartarson, Afturelding
- Ævar Smári Gunnarsson, Afturelding
- Össur Haraldsson, Haukar
Þjálfarateymið og starfsmenn hópsins eru Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari, Óskar Bjarni Óskarsson, Hrannar Guðmundsson, Roland Eradze, Jón Gunnar Kristjánsson, Guðni Jónsson og Erlendur Egilsson.