Fara í efni
Mannlíf

Flokkun lífríkisins á að vera til einföldunar

Undanfarið hefur Sigurður Arnarson oft beint kastljósinu að birki í vikulegum pistlum á vef Skógaræktarfélags Eyfirðinga, sem akureyri.net vekur athygli á alla miðvikudaga. Birki er algengasta trjátegund landsins og skipar mikilvægan sess í íslenskri vist. „Oftast nær höfum við sett inn einn og einn pistil og sagt frá ýmsu öðru þess á milli. Nú ætlum við að birta tvo pistla um skyld málefni sem tengjast birkinu. Í þessum pistli fjöllum við um nánustu fjölskyldu birkisins en í þeim næsta, sem við birtum eftir viku, segjum við frá helstu tegundum ættkvíslarinnar og hvernig hún er flokkuð,“ segir Sigurður í pistli dagsins.

Meira hér: Nánasta fjölskylda birkis