Fara í efni
Mannlíf

Fjórar nýjar sýningar í Listasafninu

Ein nýju sýninganna í Listasafninu er sýning Baldvins Ringsted - Hversdagsland - þar sem hann notar fundin útsaumsverk til að skapa nýtt landslag.

Fjórar nýjar sýningar verða opnaðar í Listasafninu á Akureyri laugardaginn 29. ágúst og standa þær allar fram í mars á næsta ári. Sýningarnar eru ólíkar innbyrðis en eiga það meðal annars sameiginlegt að tengjast náttúru, efniskennd, skynjun og því hvernig list getur fengið fólk til að horfa á umhverfi sitt með nýjum augum.

Stærsta verkefnið er sýning danska listamannsins og hönnuðarins Charlotte Søeborg Ohlsen, Bergmál umbreytingar: Út í garð, sem nær bæði inn í safnið og út í Lystigarðinn á Akureyri. Þar verða skordýr í ólíkum myndum hluti af heildstæðu verki sem teygir sig milli þessara tveggja staða.

Charlotte Søeborg Ohlsen hefur um árabil unnið á mörkum myndlistar, hönnunar og handverks og hefur pappír gegnt veigamiklu hlutverki í verkum hennar. Hún klippir og brýtur eina pappírsörk í margbrotin form án þess að nota lím og hefur skordýr orðið eitt helsta leiðarstef hennar. Á Akureyri verða form hennar hins vegar einnig unnin í messing og ál.

Eitt skordýra Charlotte Søeborg Ohlsen.

Í safninu virðast svört pappírsskordýr hafa tekið sér bólfestu á gluggum, veggjum og víðar í rýminu. Úti í Lystigarðinum verða þau að málmskúlptúrum sem veður, birta og árstíðir fá að móta með tímanum. Þannig verður ferðalagið frá safninu og út í garðinn hluti af sjálfu listaverkinu.

Hversdagslegir hlutir verða að nýju landslagi

Akureyringurinn Baldvin Ringsted opnar jafnframt sýninguna Hversdagsland. Baldvin er fæddur og uppalinn á Akureyri en hefur um árabil búið og starfað í Skotlandi. Hann hefur unnið með fjölbreytta miðla, meðal annars málverk, prent, skúlptúra og vídeó, og hefur sýnt verk sín víða um heim.

Á nýju sýningunni notar hann fundin útsaumsverk til að skapa nýtt landslag. Verkin koma úr hversdagslífinu og bera með sér sögu og minningar frá heimilum sem hafa gengið í arf, verið seld eða endurnýjuð. Baldvin raðar þessum brotum saman og gefur þeim nýtt líf.

Útkoman er samkvæmt safninu landslag sem er í senn kunnuglegt og fjarlægt, en einnig súrrealískt og jafnvel dálítið ógnvekjandi. Baldvin hefur meðal annars lýst áhuga sínum á þeim „vúdúkrafti“ sem getur búið í hversdagslegum hlutum.

Náttúran í ólíkum myndum

Í sýningunni Í snertingu leiða þrír listamenn saman ólíkar nálganir að náttúrunni. Þar eiga verk Páls á Húsafelli, Lene Zachariassen og Maríu Tórgarð samtal sín á milli.

Páll á Húsafelli er þekktur fyrir vinnu sína með stein.

Páll vinnur með stein og málar á svell, en Lene, sem er norsk að uppruna en búsett á Íslandi, vinnur með náttúruleg efni, þræði og áferð. María Tórgarð nálgast viðfangsefnið í myndbandi þar sem hreyfing, hljóð, vatn og ljós fléttast saman við tónlist &Bartal.

Sýningin leitast þannig við að skapa tengingu milli mannsins og náttúrunnar og varpa ljósi á hvernig list getur brúað mörk milli ólíkra landa, menningarheima og umhverfis. Sýningarstjóri er Þórarinn Blöndal.

Safngestir fá líka að skapa

Fjórða sýningin ber heitið Hughrif – litir – form II og byggir á völdum verkum úr safneign Listasafnsins á Akureyri. Þar er sjónum sérstaklega beint að því hvernig litir og form hafa áhrif á upplifun okkar af myndlist. Verkin eru fjölbreytt og unnin með ólíkum efnum og aðferðum. Gestir eru jafnframt hvattir til að skoða verkin með gagnrýnum augum og velta fyrir sér hvaða merkingu litir, form og áferð geta haft.

Eitt listaverkanna á sýningunni Hughrif – litir – form II.

Ekki er þó ætlunin að safngestir séu aðeins áhorfendur. Þeir fá einnig tækifæri til að skapa eigin verk innblásin af sýningunni. Sýningarstjóri er Heiða Björk Vilhjálmsdóttir.

Allar fjórar sýningarnar verða opnaðar laugardaginn 29. ágúst kl. 15 og standa til 7. mars 2027. Fyrir gesti Akureyrarvöku verður auk þess hægt að kynnast verki Charlotte Søeborg Ohlsen strax við setningu hátíðarinnar í Lystigarðinum föstudagskvöldið 28. ágúst kl. 20.