Fara í efni
Mannlíf

Fæddur inn í Framsókn og aðdáandi Eysteins

Jóhann Árelíuz er í pólitískum ham í pistli dagsins úr Eyrarpúkanum, því gáskafulla skáldverki sem gerist á Eyrinni á Akureyri um miðja síðustu öld. Akureyri.net birtir kafla úr bókinni á hverjum sunnudegi.

„Eldhúsdagsumræðurnar voru teknar alvarlega. Mamma blessunin reyndi að flýja heimilið ef hún átti þess kost og var hálfhugstola undir maraþonkarpinu,“ segir Jóhann meðal annars. „Var ég beggja blands í áhuga mínum þegar viðraði til fótbolta og prakkarastrika en eldmóður pabba og kappið í köllunum varð yfirleitt til þess að ég hlustaði á langlokurnar tímunum sman. Enda fæddur framsóknarmaður og aðdáandi Eysteins Jónssonar.“

Pistill dagsins: Eldhúsdagsumræður

Eyrarpúkinn tíður gestur á Akureyri.net