Evrópskt gráelri lengi verið til á Íslandi
„Eftir langa og snjóþunga vetur vorar loksins í háfjöllum Evrópu. Veðrið fer hlýnandi og sólin skín, nema ef hlýindunum fylgja rigningar eins og stundum gerist. Hvort heldur sem er bráðnar snjórinn hratt og vatnið safnast saman í læki sem fossa niður hlíðarnar og geta jafnvel brotið nokkurt land og borið í burtu dýrmæta mold með þeirri næringu sem í henni kann að vera,“ segir Sigurður Arnarson í nýjum pistli í röðinni Tré vikunnar á vef Skógræktarfélags Eyfirðinga. „Þarna í fjöllunum renna lækirnir saman í straumharðar ár sem á vorin geta flætt yfir bakka sína og fært umhverfi þeirra á kaf. Þetta er ekki góður staður fyrir tré til að vaxa á, en ein tegund hefur þróast alveg sérstaklega til að takast á við þetta umhverfi. Heitir hún gráelri eða Alnus incana (L.) Moench. Evrópskt gráelri er tré vikunnar.“
Pistill Sigurðar: Evrópskt gráelri – Fyrsti hluti