Fara í efni
Mannlíf

„Er fólk gjörsamlega gengið af göflunum?“

„Nei, veistu, nú er mér eiginlega nóg boðið. Hatursglæpur hvað? Bakslag hvað? Hómófóbía hvað? Er fólk gjörsamlega gengið af göflunum? ... “

Stefán Þór Sæmundsson mætti til leiks á ný fyrir hálfum mánuði ásamt þeim áhugaverða karakter, Aðalsteini Öfgar. Nýja pistlaröð kallar Stefán einmitt Á spjalli með Aðalsteini Öfgar og setningin að ofan er upphaf pistils númer 3. Pistlar Stefáns Þórs birtist á akureyri.net á laugardögum.

Stefán hugsar með sjálfum sér: 

Svei mér þá, nú var Aðalsteinn Öfgar í ham. Kannski hafði ég gert mistök þegar ég dró hann út úr íbúðarkytrunni á Eyrinni og burt frá gula Braganum og bauð honum í bjór í blíðunni á Lyst. Allavega kjaftaði á honum hver tuska þegar bjórarnir voru orðnir þrír og fjárhagur minn heldur rýr. Ekki illa meint, það er alltaf gaman að fara í Lystigarðinn. Kaffið var prýðilegt.

Pistill Stefáns Þórs: Með höfuðið í gini ljónsins