Fara í efni
Mannlíf

Enn dökknar útlitið hjá KA-strákunum

Ólafur Gústafsson lék vel með KA í gærkvöldi, bæði í vörn og sókn. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Líkurnar á að KA komist í átta liða úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta minnkuðu enn í gærkvöldi þegar liðið tapaði fyrir Stjörnunni í Garðabæ. Raunar sogast KA-menn enn frekar í fallbaráttuna því ÍR-ingar eru sem fyrr þremur stigum á eftir, í næst neðsta sæti, en eiga nú tvo leiki til góða.

Mikil batamerki voru á leik KA frá síðustu leikjum, en tap varð engu að síður staðreynd. Stjarnan vann 30:26

Fyrri hálfleikurinn var mjög jafn og Stjarnan aðeins einu marki yfir að honum loknum, 13:12. Eftir að staðan var 16:16 tóku heimamenn sprett og gerðu fjögur mörk í röð en að þeim kafla loknum svöruðu KA-menn með þremur mörkum í röð; staðan þá 20:19. Enn stigu Garðbæðingarnir á bensíngjöfina og komust nokkrum mörkum yfir en aftur minnkaði KA muninn í eitt mark, 26:25. Stjörnumenn voru svo heldur sterkari á lokakakaflanum.

Mörk KA: Ólaf­ur Gúst­afs­son 9, Dag­ur Gauta­son 4, Jens Bragi Bergþórs­son 4, Ein­ar Rafn Eiðsson 4 (3 víti), All­an Norðberg 3, Gauti Gunn­ars­son 2.

Varin skot: Nicholas Satchwell 14 (40%) og Bruno Bernat 6 (46,2%).

Smellið hér til að sjá alla tölfræðina.