Fara í efni
Mannlíf

Ekki tilviljun heldur menningarleg þróun

Lengi hefur verið fullyrt að upphaf frönsku kartöflunnar sé alls ekki í Frakklandi heldur í Belgíu. Þetta segir Þráinn Lárusson í nýjum pistli í röðinni MATARÞRÁ-INN sem akureyri.net birtir í dag; seinni pistli um franskar kartöflur.

Þráinn heldur áfram: „Lífseigust er sennilega sagan sem segir að bandarískir hermenn í fyrri heimsstyrjöldinni hafi kynnst þessum kartöflum hjá frönskumælandi hermönnum í Evrópu. Þeir hafi talið víst að kartöflurnar væru franskar – og ekki gert sér grein fyrir að hermennirnir voru ekki Frakkar heldur Belgar. Kartöflurnar hafi því, að ósekju verið kenndar við Frakkland – Belgum til mikils ama.“

Þráinn rekur sögu þessa vinsæla skyndibita og kemur víða við, í stórskemmtilegum og fróðlegum pistli.

  • Akureyringurinn Þráinn Lárusson er matreiðslumeistari og hefur í fjöldamörg ár verið áberandi sem athafnamaður í ferðaþjónustu á Austurlandi þar sem hann hefur rekið bæði veitingastaði og hótel. Hann skrifar fjölbreytta pistla um mat fyrir akureyri.net.

Grein Þráins í dag: Eru þær franskar? – 2