Einstakar tegundir í heimi berfrævinga
Um mitt síðasta ár birtist pistill Sigurðar Arnarsonar, í röðinni Tré vikunnar, um einkennisbarrtré suðurhvels jarðar. Það eru tegundir af ættkvísl gagnviða eða Podocarpus. Gagnviðir eru lykiltré ættar sinnar sem kallast gagnviðarætt eða Podocarpaceae. „Innan þeirrar ættar eru samtals um tveir tugir ættkvísla, en heimildum ber ekki saman um nákvæman fjölda,“ skrifar hann í pistli dagsins. „Þar má finna ýmis merkileg tré og runna sem mörg hver eru mjög framandi í augum þeirra sem búa á norðurhveli jarðar. Að ekki sé nú talað um þá sem búa á Íslandi.“ Í pistli dagsins segir stuttlega frá sumum þessara tegunda. „Þær eiga það flestar sameiginlegt að vera einstök í heimi barrtrjáa eða berfrævinga,“ segir Sigurður.
Meira hér: Furðutré innan gagnviðarættar