Ein með öllu og bærinn mun iða af lífi

Fjölskylduhátíðin Ein með öllu verður haldin á Akureyri um verslunarmannahelgina dagana, 31. júlí til 3. ágúst og í ár verður Akureyrarvöllur, gamli íþróttavöllurinn við Hólabraut, aðalsvæði hátíðarinnar eins og Akureyri.net hefur áður greint frá. Sparitónleikarnir, lokaviðburðurinn ár hvert, verður því ekki á flötinni neðan Samkomuhússins heldur á Akureyrarvelli.
„Bærinn iðar af lífi og fjöri yfir hátíðina þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi,“ segir í tilkynningu frá Einni með öllu. „Þar verða fjölskyldu-, barna-, og kvöldskemmtanir um allan bæ, landsþekktir listamenn stíga á stokk, tvö tívolí mæta í bæinn og verða staðsett á Akureyrarvelli, skógardagur í Kjarnaskógi, sparitónleikarnir og aðrir viðburðir munu sjá til þess að halda lífi og fjöri í bænum. Þær mögnuðu Kata Vignis og DJ Lilja verða kynnar hátíðarinnar, þær munu sjá til þess að gera hátíðina ógleymanlega með okkur.“
„Akureyrarvöllur býður upp á betri aðstöðu fyrir gesti og listafólk og verður miðpunktur líflegs og fjörugs hátíðarhalds um verslunarmannahelgina,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum Einnar með öllu og það má til sanns vegar færi. Mynd: Þorgeir Baldursson
Akureyrarvöllur er „glæsilegt og rúmgott svæði í hjarta bæjarins. Þar er nægt pláss fyrir fjölbreytta dagskrá helgarinnar, þar sem bæði tívolí, tónleikar og aðrar uppákomur fá að njóta sín til fulls,“ segir í tilkynningunni. „Akureyrarvöllur býður upp á betri aðstöðu fyrir gesti og listafólk og verður miðpunktur líflegs og fjörugs hátíðarhalds um verslunarmannahelgina.“
Sparitónleikarnir á sunnudagskvöldinu eru stærstu tónleikar helgarinnar. Í áðurnefndri tilkynningu segir:
- Við höfum fengið með okkur landsþekkt tónlistarfólk á borð við Herra Hnetusmjör, Friðrik Dór, Kristmund Axel, Aron Can og Íþróttaálfinn.
- „Þá höfum við einnig fengið með okkur í lið frábært tónlistarfólk frá Norðurlandinu líkt og Saint Pete, hljómsveitina Skandal sem sigraði nýverið í Söngkeppni framhaldsskólanna, Rúnar Eff, Tinnu Óðins og Ágúst Þór sem koma fram á sunnudagskvöldinu. Við lofum alvöru stemningu á Akureyrarvelli svo láttu þig ekki vanta sunnudagskvöldið 3. ágúst.“
Kirkjubekkurinn hefur verið þétt setinn ár eftir ár á óskalagatónleikum Óskars Péturssonar, Eyþórs Inga Jónssonar og Ívars Helgasonar. Myndir: Skapti Hallgrímsson
Tónlistarlífið
Mikið er um tónlist á hátíðinni en hún verður sannarlega í boði víðar um helgina.
- Dagskráin á Græna Hattinum „er ekki af verri endanum þar sem Magni, Matti Papi, Hr. Eydís og Hera Björk stíga á svið og halda næturlífinu gangandi alla helgina.“
- Í Akureyrarkirkju verður boðið upp á Óskalagatónleika með þeim Óskari Péturssyni, Eyþóri Inga Jónssyni og Ívari Helgasyni þar sem þeir syngja og spila óskalög tónleikagesta. „Tónleikarnir hafa fengið frábærar undirtektir frá bæjarbúum þar sem gestir fá lagalista með nokkuð hundruð lögum og biðja svo um óskalög.“
- Sú nýbreytni verður í ár að á laugardagskvöldinu um verslunarmannahelgina verða stórir tónleikar, á Akureyrarvelli eins og sparitónleikarnir kvöldið eftir. Rétt er að vekja athygli á að tónleikarnir á laugardeginum, sem kallast Öll í einu, eru ekki hluti af hátíðinni Einni með öllu og selt er inná þá. „Sannkölluð tónlistarveisla þar sem fram koma Friðrik Dór, Emmsjé Gauti, Birnir, GDRN, Páll Óskar og Á móti sól. Hægt er að kaupa miða á tix.is, en frítt er inn fyrir 16 ára og yngri!“ segir í áðurnefndri tilkynningu.
- „Í Sjallanum verður nóg um að vera en á laugardagskvöldinu verður blásið upp alvöru veislu með Birni, Emmsjé Gauta og Páli Óskari og svo klára Herra Hnetusmjör, Friðrik Dór, Aron Can, Kristmundur Axel og Saint Pete hátíðina á sunnudagskvöldinu.“
Frá krakkahlupi Súlur Vertical á síðasta ári. Leikurinn verður vitaskuld endurtekinn nú því vinsældir voru miklar. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Nóg af hreyfingu og fjöri
- Það verður nóg í boði fyrir hlaupagarpa bæjarins en fjallahlaupið Súlur Vertical verður á laugardaginum. Fjórar vegalengdir eru í boði, 19 km, 29 km, 48 km og 100 km utanvegahlaup. Krakkahlaup Súlur Vertical er í Kjarnaskógi á föstudeginum. Akureyri.net fjallaði um Súlur Vertical í gær: Sjá hér.
- „Á bílaplani Ísbúðar Akureyrar í miðbænumverður slegið upp heljarinnar krakkaskemmtun í boði Ísbúðin Akureyri, Sykurverk, DJ Grill og Imperial þar sem Dísa og Júlí koma og skemmta krökkum á svæðinu, Daníel Töframaður mætir og töfrar fyrir alla gesti og meðlimir Hvolpasveitarinnar og Blæja og Bára mæta á svæðið. Húlladúllan verður svo á útisvæði Sykurverk með húllandi skemmtun fyrir káta krakka! Þá mætir einnig Klói kókómjólk á svæðið og gefur öllum börnum glaðning í boði MS.“
Menning, list og hönnun“
- Það verður einnig nóg í boði fyrir listunnendur og aðra áhugamenn um hönnun en á Ráðhústorginu verður markaðsstemning á föstudag, laugardag og sunnudag þar sem handverk, listmunir, nýjar og gamlar vörur, skór, fatnaður og margt annað verður til sölu. Einnig verða götubitar landsins mættir að leyfa fólki að njóta sinna bita.
- Á bílaplani Landsbankahússins verða Mömmur og möffins og halda upp á 15 ára afmæli! „Þær verða með notalega stemningu þar sem möffins verður til sölu og öll innkoma viðburðarins rennur líkt og áður til Fæðingardeildar Sjúkrahúss Akureyrar. Mömmur og möffins hefur fengið frábærar móttökur síðustu ár þar sem áhugabakarar geta tekið þátt í söfnuninni og skemmtuninni.“
- Söfnin í bænum verða að sjálfsögðu opin um helgina svo nóg verður um menningu og list. Mótorhjólasafnið, Listasafnið á Akureyri, Flugsafnið, Leikfangasýning í Friðbjarnarhúsi, Safnasafnið og Iðnaðarsafnið taka vel á móti gestum og gangandi.
Skógardagur Skógræktarfélags Eyfirðinga í Kjarnaskógi. Mynd: Ein með öllu.
Endalaus skemmtun
- „Alvöru hátíð má að sjálfsögðu ekki vanta tívolí en Sprell Tívolí og Taylor’s Tivoli hafa boðað komu sína til bæjarins yfir helgina þar sem m.a. fallturn, hringekja, hoppukastalaland og margt fleira verður í boði á Akureyrarvelli frá fimmtudegi til sunnudags,“ segir í tilkynningunni.
- Skógardagur Skógræktafélags Eyfirðinga verður haldinn á sunnudaginn en í Kjarnaskógi verður ýmislegt í boði fyrir gesti og gangandi og þessi viðburður fer stækkandi með hverju árinu, „ enda fátt betra en að spóka sig um í einum fallegasta skógi landsins,“ eins og segir í tilkynningunni.
- Í Kjarnaskógi munu Íþróttaálfurinn og Daníel töframaður skemmta gestum á Kirsuberjaflötinni ásamt mörgum öðrum skemmtilegum fjölskylduviðburðum.
- Á sunnudagskvöldið er svo komið að Sparitónleikunum sem haldnir verða á Akureyravelli „þar sem samansafn af glæsilegu tónlistarfólki skemmtir bæjarbúum og öðrum gestum. Herra Hnetusmjör, Friðrik Dór, Kristmundur Axel, Aron Can, Rúnar Eff, Tinna Óðins, Ágúst Þór, Skandall, Saint Pete og Íþróttaálfurinn munu sjá til þess að skemmta okkur fram á miðnætti.“
- „Tilvalið að taka með sér fjölskyldu og vini og syngja hástöfum og fylgjast með flugeldasýningunni. Eftir tónleikana opna svo skemmtistaðir bæjarins og halda stuðina áfram langt fram á nótt.“
Í tilkynningunni segir að hátíðin sé enn í mótun og fólk því hvatt eindregið til þess að kynna sér allt sem er í boði og kíkja reglulega á dagskrána á vefnum – www.einmedollu.is