Mannlíf
Eigum við að greiða niður verðbólguna?
03.10.2026 kl. 06:00
„Hvernig dettur okkar dæmalausu og hæstvirtu snillingum í hug að láta almenning greiða niður þessa heimatilbúnu verðbólgu og svokallaðar verðbólguvæntingar sem verða til af því að ákveðinn hópur fólks er með kaupæði, eyðir og spennir og hugsar bara um rassgatið á sjálfum sér?“ Þetta tautar Aðalsteinn Öfgar, góðkunningi lesenda, þar sem hann er á spjalli með Stefáni Þór Sæmumdssyni tíunda laugardaginn í röð.
„Svo eigum við öryrkjarnir, ég meina eldri borgarar, að borga brúsann. Ég breyttist víst úr öryrkja í eldri borgara þegar ég varð 67 ára, mér snarbatnaði alveg en mér sýnist lífeyririnn hafa lækkað talsvert,“ tautaði Aðalsteinn í símann.
- Pistill Stefáns Þórs: Eigum við að borga brúsann?