Edda og ADHD – Saga Ólafs Þórs úr kerfinu
Fimmti pistill Ólafs Þórs Ævarssonar í röðinni Sögur úr heilbrigðiskerfinu, sem hann skrifar fyrir akureyri.net, birtist í dag. Ólafur Þór, geðlæknir til áratuga, vill með sögunum skrifa uppbyggilega gagnrýni á heilbrigðisþjónustuna.
„Ég vil nýta þá þekkingu sem ég hef eftir að hafa starfað svo lengi innan kerfisins og tjá athugasemdir sem ég heyri frá læknum og sjúklingum,“ segir Ólafur.
Í pistli dagsins fjallar Ólafur um ADHD. Hann segir frá konu, Eddu, sem komin er á þriðja ár í lögfræðinámi. „Henni sækist námið vel en henni finnst hún þurfa að hafa mikið fyrir því og hún er yfirleitt ekki nægilega ánægð með einkunnirnar sínar. Af því að Geirlaug vinkona hennar hefur talað svo mikið um hve allt fór að ganga betur eftir að hún fékk Concerta þá ákvað Edda að fara í greiningu.“
Um skrif sín í pistlaröðinni segir Ólafur: „Ég vona að þetta örvi uppbyggilega umræðu meðal almennings, hagsmunasamtaka, allra heilbrigðisstétta, stjórnmálamanna og stjórnvalda sem geti stuðlað að úrbótum.“
- Pistill Ólafs Þórs: Edda og ADHD greiningin