Fara í efni
Mannlíf

Dyrnar opnaðar í Eyjafjarðarsveit

Ýmislegt verður á döfinni í Eyjafjarðarsveit í dag þegar dyrnar verða opnar frá klukkan 13.00 til 17.00 á fjölmörgum stöðum. Fólki gefst  þá tækifæri til að kynna sér vörur og þjónustu af ýmsu tagi í sveitarfélaginu. Sem dæmi má nefna jólamarkað í Kristnesi, ókeypis er inn á hið frábæra Smámunasafn í Sólgarði, á Brúnum verður myndlistarsýning og bókakynningar, frítt er í fjósið á Kaffi Kú og í Laugarborg verða sölubásar og kaffisala. Hér að neðan má sjá allt sem er í boði.