Mannlíf
„Dóttir götunnar“ – soð, laukur og þolinmæði
23.05.2026 kl. 06:00
„Það hefur verið sagt að það sé erfitt að ímynda sér siðmenningu án lauks.“
Þannig hefst vikulegur pistill Þráins Lárussonar um mat. Pistlaröðina köllum við MATARÞRÁ-INN og akureyri.net hvetur lesendur til að gaumgæfa skrif Þráins síðustu mánuði því pistlar hans eru frábærir, bæði fróðlegir og skemmtilegir.
Hann segir í dag: „Frönsk lauksúpa er einn þeirra rétta sem virðast einfaldir en eiga sér langa sögu. Hún er ekki uppfinning tiltekinna tíma, heldur sprottin af þróun sem spannar aldir. Laukur hefur frá fornu fari verið meðal algengustu matvæla í Evrópu, ódýr, geymsluþolinn og næringarríkur. Af honum urðu til einfaldar súpur sem eldaðar voru yfir opnum eldi, oft úr litlu meira en lauk, vatni og brauði.“
- Pistill Þráins: