Fara í efni
Mannlíf

Brynhildur fer aftur á bráðamóttökuna

Annar pistill Ólafs Þórs Ævarssonar geðlæknis í nýrri röð – Sögur úr heilbrigðiskerfinu –  birtist í dag. Ólafur Þór skrifar pistlana fyrir akureyri.net og kveðst vonast til þess að skrifin „örvi uppbyggilega umræðu meðal almennings, hagsmunasamtaka, allra heilbrigðisstétta, stjórnmálamanna og stjórnvalda sem geti stuðlað að úrbótum,“ eins og hann kemst að orði.

Fyrsti pistillinn birtist í gær. Þar sagði Ólafur frá gamalli konu, sem hann kallar Brynhildi, og reynslu hennar af heilbrigðiskerfinu. Hún er aftur í aðalhlutverki í pistli dagsins, sem er framhald þess sem birtist í gær.

Pistill Ólafs Þórs: Brynhildur fer aftur á bráðamóttökuna