Beðið eftir sumrinu ... og svo flýgur tíminn
„Það er merkilegt hvað við leggjum miklar væntingar á sumarið. Við bíðum eftir því mánuðum saman. Þá verður loksins tími. Tími til að hvíla sig, hitta fólkið sitt, fara í gönguferðir, lesa bókina sem hefur legið á náttborðinu og njóta þess að dagarnir eru lengri.“
Þannig hefst heilsupistill Hrafnhildar Reykjalín Vigfúsdóttur sem akureyri.net birtir í dag. Pistillinn ber yfirskriftina Þarf sumarið að vera fullkomið? og er bæði skemmtilegur og mjög umhugsunarverður.
Svo kemur sumarfríið „og stundum finnst mér eins og við setjum á okkur nýja tegund af pressu,“ skrifar Hrafnhildur, sem segist sjálf engin undantekning.
„Þetta er svolítið kaldhæðnislegt og eiginlega smá skondið. Við bíðum eftir fríinu til að hægja á okkur en tökum svo sama taktinn með okkur inn í það.“
Pistill Hrafnhildar: Þarf sumarið að vera fullkomið?