Fara í efni
Mannlíf

Bardagi við djöfla í eigin völundarhúsi

Pistlar Jóns Óðins Waage sem birtast á Akureyri.net hafa gjarnan vakið mikla athygli og viðbrögð. Nú horfir hann í baksýnisspegilinn í bundnu máli.

Stöðugt ég reika um völundarhús hugar míns.
Bardagi miðaldra manns
við djöfla sem leynast þar inni.
 

Þannig hefst pistill – ljóð – Jóns Óðins sem birtist í dag.

„Þegar maður dettur á sjötugsaldurinn horfir maður í baksýnisspegilinn. Þegar svo maður er með bullandi ADHD þá eru það slæmu minningarnar sem eru að æra mann; þær stoppa aldrei. Svo þetta raus mitt er hluti af baráttunni við þær,“ segir Jón Óðinn til útskýringar.

Smellið hér til að lesa allt ljóðið