Fara í efni
Mannlíf

Arnór Bliki fjallar um 120 ára „afmælisbörn“

Í nýjasta pistli Arnórs Blika Hallmundssonar í röðinni Hús dagsins hefur hann umfjöllun um hús á Akureyri sem eiga 120 ára afmæli í ár, „og berum við niður við Hafnarstræti í einni af skemmtilegri húsaröð bæjarins,“ segir hann í pistlinum. Í fyrsta pistlinum fjallar Arnór Bliki um Hafnarstræti 35. 

Hann segir í upphafi pistilsins:

„Við fótskör hinnar snarbröttu brekku, er liggur á milli stórgiljana tveggja, Búðargils og Grófargils, liggur ein elsta og lengi vel lengsta gata Akureyrar, Hafnarstræti. Heita má, að hún tengi saman alla hina elstu bæjarhluta Akureyrarkaupstaðar, nær nokkurn veginn frá ysta odda Fjörunnar, yfir hina eiginlegu Akureyrar og tengist í raun, landfræðilega, suðvestasta hluta Oddeyrar, um Bótina. Á þeim tengipunkti, í Ráðhústorginu, mætast líka Brekkugatan og Hafnarstræti en um þessar götur lá raunar þjóðbrautin gegnum Akureyri. Sá hluti Hafnarstrætis er lá frá Akureyri undir brekkunni miklu, um Bótina, var mikil samgöngubót og gerði það að verkum, að byggðir þessar á eyrunum við botn Eyjafjarðar náðu að tengjast. Mjög fljótlega eftir veglagningu þessa tóku að rísa hús í brekkurótunum, m.a. nýtt barnaskólahús og samkomuhús bæjarbúa. Á meðal þeirra sem þarna byggðu voru tveir ungir trésmíðameistarar, sem þarna keyptu lóðir, byggðu hús og seldu; voru þannig nokkurs konar byggingarverktar. Hús þessara smiða, sem hétu Jónas Gunnarsson og Sigtryggur standa við Hafnarstræti 33-41 og eru öll með svipuðu lagi, fljótt á litið, en þó gjörólík innbyrðis. (Eitt þessara húsa, nr. 37, brann til grunna vorið 2020). Eitt þessara húsa er Hafnarstræti 35. Það er reist 1906 og því 120 ára í ár, en hin húsin eru lítið eitt eldri, talin byggð 1903-04. “