Fara í efni
Mannlíf

„Allt gott“ – Hvernig hefurðu það, í alvöru?

„September er gulur. Mánuður tileinkaður vitundarvakningu um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir og áminning um mikilvægi þess að við tölum saman, hugum hvert að öðru og vitum hvert við getum leitað þegar við eða fólkið í kringum okkur þurfum á stuðningi að halda. “

Þannig hefst heilsupistill Hrafnhildar Reykjalín Vigfúsdóttur sem akureyri.net birtir í dag. Hún heldur áfram:

„Mér finnst mikilvægt að þetta fari saman: Að við tölum um hvernig við getum hlúð að geðheilsunni og mikilvægi forvarna en líka um hvernig við getum tekist á við lífið þegar það verður erfitt. Því flest göngum við einhvern tímann í gegnum erfið tímabil sem við höfum ekki endilega mikla stjórn á,“ segir hún. „Við getum verið sterk og staðið okkur vel í lífinu og samt átt tímabil þar sem við þurfum á stuðningi annarra að halda. Stundum nægir samtal við góðan vin eða nærvera einhvers sem þekkir okkur vel. Stundum þurfum við meira og þá skiptir máli að vita hvert hægt er að leita og að upplifa það sem eðlilegan hluta þess að hugsa vel um heilsuna.“

Pistill Hrafnhildar: Hvernig hefurðu það, í alvöru?