Fara í efni
Mannlíf

Af rófulísu og öðrum heimagerðum eftirmat

Það var enginn málsverður lakari en svo á Syðri-Brekkunni að eftirmatur fylgdi ekki með í enda borðhaldsins. Og hann var af öllu tagi.

Þannig hefst 85. pistill Sigmundar Ernis Rúnarssonar, rithöfundar, sjónvarpsmanns og alþingismanns, í röðinni Akureyri æsku minnar. Nýr pistill birtist á Akureyri.net á hverjum mánudegi.

En einkanlega þó heimagerður af því tagi sem brauðsúpa var, sá vinsæli kostur, sem búinn var til úr allra seinustu leifunum af helstu hleifum heimilisins, hvort heldur var úr byggi, hveiti, eða rúgi. Stundum með flóaðri mjólk í miðju skálar, og ef betur stóð á búri, þá með þeyttri rjómaklípu.

Pistill dagsins: Eftirmatur