Fara í efni
Mannlíf

Af hverju getur verið svona erfitt að slaka á?

Heilsupistill Hrafnhildar Reykjalín Vigfúsdóttur sem akureyri.net birtir í dag hefst á þessum orðum:

Kunningi minn sagði við mig um daginn: „Veistu, ég kann bara ekki að slaka á.“

Hrafnhildur kveðst haldi að mörg okkar skilji nákvæmlega hvað hann átti við, og bætir við: Við getum verið dauðþreytt eftir langan dag og langað ekkert meira en að hvíla okkur, en þegar við loksins setjumst niður sest hugurinn ekki endilega niður með okkur. Við förum yfir daginn, hugsum um það sem við eigum eftir að gera, skipuleggjum morgundaginn eða grípum í símann og finnum okkur eitthvað til að hafa fyrir stafni. Það að stoppa er nefnilega ekki alltaf það sama og að slaka á.

Hrafnhildur spyr: En af hverju skiptir það yfirhöfuð máli að kunna að slaka á? og svarar því í mjög fróðlegum og áhugaverðum pistli. 

Pistill Hrafnhildar: Af hverju getur verið svona erfitt að slaka á?