Mannlíf
„Æskuvinur föður míns“ – Kunta Kinte og Rætur
29.05.2026 kl. 11:45
„Hvernig í ósköpunum stendur á því að þú, ungur hvítur maður frá Íslandi, hefur heyrt um Rætur?“ spurði þeldökk bandarísk kona son minn á dögunum, þegar þau voru að fara yfir sviðið og talið barst að stöðu mannréttinda þar vestra. „Nú, Kunta Kinte,“ svaraði sonur minn. „Hann er æskuvinur föður míns.“
Orrablót dagsins hefst á þessum orðum; Orri Páll Ormarsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, skrifar pistla fyrir akureyri.net og birtast þeir annan hvern föstudag eins og lesendur vita. Þar rifjar hann gjarnan upp æskuárin heima á Akureyri og þótt heimabærinn komi ekki við sögu nema óbeint og að litlu leyti í dag kannast án efa margir við umfjöllunarefnið.
- Orrablót dagsins: