Að vera góður (með sig) en samt ...
„Löngum hef ég reynt að tjónka við Aðalstein Öfgar síðustu árin, stundum með þokkalegum árangri. Um daginn bauð ég honum í gamaldags grautarlummur og gljásvart kaffi, hvorki þynnt né styrkt með göróttum drykkjum. Niðurstaðan eftir spjallið varð óvænt sú að við munum ekki hittast aftur í bráð og pistlaskrif leggjast niður þannig að landsmenn geta andað léttar.“
Þannig hefst pistill Stefáns Þórs Sæmundssonar sem akureyri.net birtir í dag, sá 12. og síðasti í röðinni Á spjalli með Aðalsteini Öfgar.
„Fyrr hætti ég að drekka en fara á Vog,“ tautaði Alli þegar Stefán reyndi að beina honum á rétta braut. Eitthvað þessu líkt hafði hann heyrt áður og raunar fleira sem Alli bætti við.
Stefán skrifar: „Hann þóttist góður. Jafnvel góður með sig en það er gríma. Ég þekki það sjálfur. Við erum líkir að þessu leyti. Sjálfsagt báðir greindir með félagskvíða. Þeir eru ófáir viðburðirnir sem ég hef sleppt eða snúið við á síðustu stundu, sem mér finnst alltaf dálítill skellur. Skárra að hanga bara heima og þykjast ekki vita af neinu.“
Pistill Stefáns Þórs: Að vera góður (með sig)