Fara í efni
Mannlíf

Að reyna stöðugt að ná í skottið á sjálfum sér

„Nú styttist í að hversdagsleikinn taki aftur við eftir sumarið. Skólar byrja, vinnan kemst á fullt, æfingar og tómstundir fara aftur inn í dagatalið og áður en við vitum af eru vikurnar orðnar ansi þéttskipaðar.“
 
Þannig hefst heilsupistill Hrafnhildar Reykjalín Vigfúsdóttur sem akureyri.net birtir í dag.
 
„Ég held að mörg okkar þekki þá tilfinningu að vera stöðugt að reyna að ná í skottið á sjálfum sér,“ segir hún. Það sé alltaf eitthvað sem við ættum að vera búin að gera, einhver sem við ætluðum að hringja í, verkefni sem bíður, og þar fram eftir götunum.
 
„Við náum líklega aldrei alveg í skottið á okkur. Enda held ég að það sé ekki markmiðið. En með tímanum geta allar þessar litlu ákvarðanir orðið að einhverju miklu stærra: Lífi sem endurspeglar betur það sem við metum og hvernig okkur langar raunverulega að lifa því.“
 

Pistill Hrafnhildar: Hverju gefum við pláss?