Fara í efni
Íþróttir

Útileikir kvennaliða í íshokkí og körfubolta

Tvö af kvennaliðum Akureyrar taka tveggja leikja helgi fyrir sunnan, annars vegar lið Þórs í körfubolta og hins vegar hokkíkonurnar í SA. Þór mætir ungmennaliði Hauka í dag kl. 13 og SA mætir Fjölni í Grafarvoginum kl. 16:45 í seinni leik liðsins þessa helgina.

  • Körfubolti: Kvennalið Þórs í körfuboltanum fer suður og leikur bæði í dag og á morgun. Þór sækir ungmennalið Hauka heim í Hafnarfjörðinn í dag og leiktíminn frekar óvenjulegur, flautað til leiks kl. 13. Eftir sigur á Selfyssingum í sjöundu umferðinni fór Þórsliðið upp að hinu Þórsliðinu, úr Þorlákshöfn, á toppi deildarinnar. Bæði liðin hafa unnið sex leiki af fyrstu sjö. Haukaliðið er í 5. sæti deildarinnar, hefur unnið fjóra leiki af sjö.
  • Íshokkí: Kvennalið Skautafélags Akureyrar á annasama helgi fram undan. SA-konur mæta liði Fjölnis í Egilshöllinni öðru sinni í dag, en liðin mættust einnig í Egilshöllinni í gærkvöld. Tveggja leikja helgi í höfuðborginni hjá toppliði SA. Akureyringum hefur gengið vel það sem af er tímabilinu og er SA í toppsæti Toppdeildarinnar með 15 stig að loknum sex leikjum. SR hefur fimm stig að loknum sex leikjum og Fjölnir fjögur stig úr fjórum leikjum. Lið SA hefur aðeins tapað einum leik, eftir framlengingu, unnið hina fimm, þar af einn eftir framlengingu.

  • Körfubolti
    Bæjarins beztu deild kvenna, 8. umferð
    Ásvellir í Hafnarfirði kl. 13
    Haukar u - Þór

  • Íshokkí
    Toppdeild kvenna í íshokkí
    Skautasvellið í Egilshöll kl. 16:45
    Fjölnir - SA