Fara í efni
Íþróttir

Úrslitaeinvígið í íshokkí kvenna hefst í dag

Skautafélagsfólk mætir jafnan vel á hokkíleikina og má búast við góðri stemningu á pöllunum í dag þegar SA mætir Fjölni í fyrsta leik úrslitarimmu Íslandsmóts kvenna. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Kvennalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí, reimar á sig skautana og mundar kylfurnar í dag þegar rimma SA og Fjölnis um Íslandsmeistaratitilinn hefst. SA-konur taka á móti Fjölniskonum í Skautahöllinni á Akureyri og hefst leikurinn kl. 16:45.

SA gerir atlögu að 18. Íslandsmeistaratitlinum í röð í kvennaflokki og miðað við yfirburði liðsins í deildarkeppninni, Hertz-deildinni, á tímabilinu er ekki fjarri lagi að spá þeim titlinum enn eitt árið. Þjálfarar liðsins hafa þurft að fást við þann höfuðverk í vetur að velja leikmannahópinn því áhuginn er orðinn það mikill og mikið framboð af frambærilegum konum að ekki komast allar að sem vilja og ættu erindi. 

Þessi lið mættust átta sinnum í deildarkeppninni á tímabilinu. Sjö sinnum hafði SA sigur, en Fjölnir vann einn leik. Markatalan í leikjunum er samtals 32-17, eða um það bil 4-2 að meðaltali, SA í vil.

  • 2. september
    SA - Fjölnir 5-4
  • 14. september
    SA-Fjölnir 6-1
  • 6. október
    Fjölnir - SA 1-3
  • 7. október
    Fjölnir - SA 4-1
  • 18. nóvember
    SA - Fjölnir 2-1
  • 16. desember
    Fjölnir - SA 2-4
  • 20. janúar
    Fjölnir - SA 2-4
  • 3. febrúar
    SA - Fjölnir 7-2