Fara í efni
Íþróttir

Tilþrifin hlýjuðu mönnum í frostinu

Baldvin Gunnarsson á fleygiferð í brautinni í gær. Hann varð í öðru sæti í Pro Open flokknum en er stigahæstur í keppninni um Íslandsmeistaratitilinn. Ljósmyndir: Katla Mjöll Gestsdóttir

AMS Lynx snjókrossið fór fram við Kröflu í gær á Vetrarhátið við Mývatn. Þetta var þriðja umferð Íslandsmótsins í snjókrossi (snocross) en alls verður keppt fimm sinnum. Mótið fór vel fram og voru veðurskilyrði eins og best voru á kosið þrátt fyrir mikinn kulda, að sögn mótshaldara, en 20 stiga frost var í Mývatnssveit í gær!

Jónas Stefánsson sigraði að þessu sinni í flokki þeirra bestu, Pro Open flokki.

Úrslit dagsins urðu sem hér segir:

Unglingaflokkur:

  1. Sigurður Bjarnason
  2. Tómar Karl Sigurðsson
  3. Árni Helgason

Sport flokkur:

  1. Frímann Geir Ingólfsson
  2. Birgir Ingvason
  3. Gabríel Arnar Guðnason

Pro Lite flokkur:

  1. Alex Þór Einarsson
  2. Ármann Örn Sigursteinsson
  3. Sigþór Hannesson

Pro Open flokkur:

  1. Jónas Stefánsson
  2. Baldvin Gunnarsson
  3. Ívar Már Halldórsson

Eftir þessa þriðju keppni er Tómas Karl með forystu í stigakeppni unglingaflokks, Frímann Geir hefur forystu í Sport flokknum, Alex Þór í Pro Lite flokki og Baldvin Gunnarsson er efstur í Pro Open flokki.

Sigurður Bjarnason sem vann unglingaflokkinn. Ljósmynd: Katla Mjöll Gestsdóttir.

Alex Þór Einarsson varð hlutskarpastur í Pro Lite flokki. Ljósmynd: Katla Mjöll Gestsdóttir.

Frímann Geir Ingólfsson sem vann Sport flokkinn. Ljósmynd: Katla Mjöll Gestsdóttir.

Jónas Stefánsson sem sigraði í Pro Open flokknum í gær. Ljósmynd: Katla Mjöll Gestsdóttir.