Fara í efni
Íþróttir

Þriggja stiga norsk sumargjöf – MYNDIR

Eftir að Sebastian Haugland (9) skoraði hljóp hann til varamanna Þórs sem hituðu upp við horn vallarins og Kristófer Kató Friðriksson, sem varð fyrstur á vegi hans, leyndi sannarlega ekki gleði sinni – enda engin ástæða til! Isaac Atanga er lengst til vinstri. Haugland var skipt af velli þegar tæpur hálftími var eftir og gekk þá glaður framhjá staðfestingu á sumargjöfinni! Myndir: Skapti Hallgrímsson

Sól skein í heiði þegar Akureyringar risu úr rekkju í gær, að morgni sumardagsins fyrsta, og sól var án efa í sinni margra Þórsara þegar þeir gengu til náða í gærkvöld þótt niðdimmt væri orðið. Þeir fengu nefnilega góðar sumargjafir að þessu sinni.

  • Fyrsta sumargjöfin var sú að nýr gervigrasvöllur félagsins, Vís-völlurinn á þeim hluta félagssvæðisins sem kallaður hefur verið Ásinn (þar sem malarvöllurinn var á sínum tíma), var formlega tekinn í notkun.
  • Þórsarar fengu þrjú dýrmæt stig í þessum fyrsta heimaleik sumarsins í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins; sigruðu Fram 1:0.
  • Síðast en ekki síst var eina mark leiksins svo glæsilegt að það verður lengi í minnum haft. Sannkallað sólskinsmark!

Það var norski framherjinn Sebastian Haugland sem tryggði Þórsurum stigin þrjú með eina markinu, eins og akureyri.net greindi frá í gærkvöldi. Markið gerði hann snemma í seinni hálfleik; Norðmaðurinn var rétt utan vítateigs þegar hann fékk sendingu frá Dananum „Greko“ Jakobsen og var ekkert að tvínóna við hlutina heldur sendi boltann með glæsilegu skoti efst í fjærhornið,  algerlega óverjandi fyrir Viktor Frey Sigurðsson markvörð Fram.

Ármann Hinrik var vel staðsettur með myndavélina og náði þessari frábæru myndasyrpu af sólskinsmarki Hauglands. 


Varamenn Þórs, sem hituðu upp við suðvesturhorn vallarins, fögnuðu að vonum innilega þegar markaskorarinn hljóp til þeirra andartaki eftir að boltinn söng í netinu. Kristófer Kató Friðriksson, Ágúst Eðvald Hlynsson, Aron Ingi Magnússon og Ingimar Arnar Kristjánsson tóku vel á móti honum, og Einari Frey Halldórssyni og Isaac Atanga sem eltu Norðmanninn.

Myndir: Skapti Hallgrímsson

  • Umfjöllun akureyri.net í gærkvöldi: 

Sigur í fyrsta leik Þórs á nýjum velli