Þórsstelpur úr leik eftir þriðja tapið
Þór beið lægri hlut gegn Fjölni í þriðja leik liðanna í umspili 1. deildar og Bónusdeildar kvenna í Íþróttahöllinni á Akureyri í dag. Lokatölur urðu 90:79 gestunum í vil og Fjölnir vann þar með alla þrjá leikina en Þór er úr leik.
Leikmannahópur Þórs hefur þynnst talsvert undanfarið og eins og í undanförnum leikjum var aðeins einn varamaður til taks á bekknum. Þrátt fyrir það var leikurinn nokkuð jafn nánast allan tímann en vitanlega segir það til sín þegar á líður að geta ekki hvílt leikmenn. Fjölnir hafði 5 stiga forystu eftir fyrsta leikhluta, 21:16, en annar leikhluti var jafn og forskot gestanna því enn fimm stig í leikhléi, 46:41.
Þórsarar náðu að hanga í gestunum til loka leiksins en voru aldrei líklegar til að ógna þeim að ráði. Lokatölur 90:79 og Þórsliðið er því komið í sumarfrí.
Chloe Wilson var langatkvæðamest í Þórsliðinu, skoraði 40 stig eða rétt um helming stiga liðsins. Hún tók einnig 14 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Yvette Adriaans kom næst með 12 stig og 15 fráköst en þær tvær léku allar mínútur leiksins hjá Þór. Leilani Kapinus var atkvæðamest hjá Fjölni að venju, með 27 stig, en þess má geta að allir sjö varamenn Fjölnis komu við sögu í leiknum.
Heilstu tölur leikmanna Þórs, stig/fráköst/stoðsendingar:
- Chloe Wilson 40/14/5 - 47 framlagspunktar
- Yvette Adriaans 12/15/1
- Karen Lind Helgadóttir 11/3/1
- Sigurlaug Eva Jónasdóttir 8/0/1
- Emilie Ravn 5/7/4
- Hjörtfríður Óðinsdóttir 3/1/2