Fara í efni
Íþróttir

Þórsarar unnu stóran sigur á Kórdrengjum

Jonn Rói Tórfinsson gerði átta mörk í gær og var valinn Þórsari leiksins. Hér skorar hann í bikarleik gegn Aftureldingu fyrr í vetur; hinir „Akureyringarnir“ þrír urðu einmitt bikarmeistarar í gær: Jovan Kukobat, Gjnnar Kristinn Malmquist Þórsson og Igor Kopyshynskyi. Ljósmynd Skapti Hallgrímsson

Þórsarar sigruðu Kórdrengi með níu marka mun á heimavelli í gær í Grill 66 deildinni, næst efstu deild Íslandsmótsins í handbolta. Þeir eru þar með komnir með 12 stig en eru þó áfram í 9. sæti deildarinnar.

Fjallað er um leikinn á heimasíðu Þórs. Þar segir:

Markverðir liðanna voru í aðalhlutverkum í fyrri hálfleiknum í dag og markvörður Kórdrengja, Birkir Fannar Bragason, hleypti engu inn fyrstu mínúturnar, ekki fyrr en gestirnir höfðu skorað þrjú mörg gegn engu marki Þórsara. Okkar menn gerðu þá fjögur mörk í röð og létu forystuna ekki af hendi eftir það. Liðunum gekk brösuglega að skora í upphafi og á fyrstu tíu mínútunum var Birkir Fannar með 70% markvörslu, eða sjö skot, og Kristján Páll Steinsson í marki Þórs með fimm varin skot, eða 62,5%. Á fyrsta fjórðungi vörðu þeir báðir átta skot. Kristján Páll spilaði aðeins fyrri hálfleikinn, en þeir Arnar Þór Fylkisson og Tristan Ylur Guðjónsson skiptu með sér þeim seinni. Markverðir Kórdrengja vörðu mun færri skot í seinni hálfleiknum en þeim fyrri.

Það var reyndar eins og allur kraftur Kórdrengja hefði farið í upphafsmínúturnar og þessa þriggja marka forystu sem þeir náðu. Þórsarar yfirtóku leikinn og juku forystuna smátt og smátt út fyrri hálfleikinn, staðan 13-7 í leikhléi. Í seinni hálfleik var eins og allur vindur væri úr gestunum og Þórsarar náðu mest 14 marka forystu, 26-12. Leikurinn leystist síðan dálítið upp á lokakaflanum og Kórdrengir minnkuðu forskotið niður í níu mörk, lokatölurnar 31-22.

Þetta var sjötti sigur Þórsara í deildinni, en Kórdrengir sitja enn á botninum með tvö stig. Jonn Rói Tórfinsson og Arnór Þorri Þorsteinsson skoruðu mest fyrir Þórsara í dag, átta mörk hvor. Jonn Rói varð fyrir valinu sem Þórsari leiksins og hlaut að launum gjafabréf frá Sprettinum. Kristján Páll Steinsson var öflugur í marki Þórs í fyrri hálfleiknum, varði þá 13 skot og skoraði mark.

Mörk Þórs: Arnór Þorri Þorsteinsson 8, Jonn Rói Tórfinnson 8, Jón Ólafur Þorsteinsson 4, Halldór Yngvi Jónsson 2, Jóhann Geir Sævarsson 2, Andri Snær Jóhannsson 2, Aron Hólm Kristjánsson 2, Aðalsteinn Ernir Bergþórsson 1, Arnþór Gylfi Finnsson 1, Kristján Páll Steinsson 1.
Varin skot: Kristján Páll Steinsson 13 (65%), Arnar Þór Fylkisson 4.
Brottvísanir: 14 mínútur

Næsti leikur Þórs er strax á þriðjudag, 21. mars, en þá koma Víkingar í heimsókn í Höllina. Leikurinn hefst kl. 18.

Minntust Ágústs

Hér er um frestaðan leik að ræða, en hann átti að fara fram 2. mars og var þá frestað vegna andláts Ágústs Lárussonar. Leikmenn og stuðningsmenn minntust Ágústs með mínútu þögn fyrir leikinn í dag, ásamt því að leika með sorgarbönd. Ágúst, eða Gústi eins og hann var jafnan kallaður, spilaði með öllum flokkum Þórs í handbolta. Eftir að handboltaiðkun hans lauk starfaði hann sem þjálfari yngri flokka Þórs við góðan orðstír. Ágúst sat einnig í stjórn Akureyrar handboltafélags um tíma og nú síðast sem gjaldkeri stjórnar handknattleiksdeildar Þórs til síðustu áramóta.