Íþróttir
Þórsarar hvattir til að mæta á félagsfund
02.03.2026 kl. 16:00
Mynd: Þorgeir Baldursson
Aðalstjórn Íþróttafélagsins Þórs hefur boðað til félagsfundar í Hamri á morgun, þriðjudaginn 3. mars, klukkan 17:30.
Framkvæmdir hafa staðið við gervigrasvöll sem tekinn verður í notkun í vor, og nýlega var undirritaður samningur við Akureyrarbæ um að íþróttahús rísi á Þórssvæðínu.
Dagskrá fundarins verður, skv. tilkynningu á heimasíðu Þórs:
- Staðan á nýjum gervigrasvelli.
- Nýtt samkomulag um íþróttamiðstöð á Þórssvæðinu.
- Framtíðarsýn félagssvæðis Þórs.
„Við hvetjum Þórsara til að fjölmenna í félagsheimilið á þriðjudag og taka þátt í umræðum,“ segir í tilkynningunni.